Hæfing, starfsþjálfun og vernduð vinna

Hæfingu, starfsþjálfun og verndaðri vinnu er ætlað að veita fötluðu fólki þjálfun og stuðning sem miðar að því að auka hæfni þess til starfa og þátttöku í daglegu lífi eða á almennum vinnumarkaði.

Með hæfingu er átt við starfs- og félagsþjálfun í þeim tilgangi að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi. Lögð er áhersla á þjálfun sem viðheldur og eykur starfsþrek, sjálfstæði í vinnubrögðum og félagslega færni.

VISS vinnu- og hæfingarstöð er staðsett á Gagnheiði 39 Selfossi (50 manna vinnustaður).
Útibú VISS er að Óseyrarbraut 4 Þorlákshöfn (15 manna vinnustaður) og að Flúðum, vinnustofa Kjallarinn.

Fatlað fólk getur sótt um tímabundna starfsþjálfun til að auka hæfni til að takast á við störf á almennum vinnumarkaði. Starfsþjálfun líkir eftir vinnuaðstæðum og kröfum sem búast má við á almennum vinnumarkaði. Einnig má sækja um starfsprófun sem metur hvers konar störf henta fólki í ljósi starfsgetu, áhugasviðs og starfsmöguleika.

Fatlað fólk getur sótt um vinnu á vernduðum vinnustað, en lög gera einnig ráð fyrir að atvinna með stuðningi standi til boða á almennum vinnumarkaði.

Vernduðum vinnustöðum er ætlað:

að veita fötluðu fólki launaða starfsþjálfun svo að það verði hæfara til að starfa á almennum vinnumarkaði og veita fötluðu fólki föst störf. Vinnan er launuð samkvæmt sérstökum kjarasamningi sem byggir á samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Hlutverks – samtaka um vinnu og verkþjálfun.

Atvinna með stuðningi (AMS) felur í sér stuðning við fólk sem hefur skerta starfsgetu vegna fötlunar. Það fær aðstoð við að finna heppilegt starf á almennum vinnumarkaði og stuðning við að sinna því. Einnig er hægt að sækja um sértæka ráðgjöf.

Atvinna með stuðningi er starfrækt hjá:

Vinnumálastofnun Suðurlands
Eyrarvegi 27, Selfossi
sími: 515-4800
Netfang: Sudurland@vmst.is

Nánari upplýsingar má nálgast hér